Dómaranámskeið



Eins og við sögðum frá hérna í síðustu viku þá verðum við með dómaranámskeið á miðvikudag og fimmtudag hérna í Reykjavík. Tenglar á lesefni fyrir námskeiðið eru í fréttinni og hvetjum við nemendur til að fara yfir þá.

Námskeiðið fer fram í húsnæði ÍSÍ að Engjavegi 6 og hefst klukkan 18:00 báða dagana.


Dagskráin lítur svona út:

Dagur 1

  • Útbúnaður dómara.

  • Vinnureglur ÍHÍ.

  • Áherslur í dómgæslu (Officiating standard).

  • Staðsetning.

  • Vinnureglur Línudómara.

  • Vinnureglur Aðaldómara.

Dagur 2

  • Jöfnunardómar.

  • Áhættustýring (Risk management).

  • Samskipti.

  • Ákeyrslur/samstuð í kvennahokkí.

  • 4-dómara kerfi.

  • Hlutverk eftirlitsdómara.

  • Bóklegt próf.

Dagskráin getur tekið einhverjum breytingum.

Þeir sem eingöngu eru að að endurnýja réttindi og ætla einungis að taka próf er bent á að hafa samband á ihi@ihi.is sem fyrst. Einnig er gert ráð fyrir próf á ís og verður tímasetning á þeim auglýst síðar.

Mynd: Sigurgeir Haraldsson

HH