Viðburðarík helgi framundan

Mikið er um að vera þessa helgina. 7 leikir í það heila. Fjörið byrjar í Laugardalnum í kvöld þegar ungmennalið SR og Fjölnis mætast í Laugardalnum. Þetta er leikur í U16A aldursflokki og hefst hann klukkan 19:30.
Á morgun laugardag eigast við á Akureyri meistaraflokkslið SA og SR bæði í karla og kvenna flokkum. Karlaleikurinn hefst klukkan 16:45 og konurnar hefja leik klukkan 19:30. Í Egilshöllinni verða síðan U18 ára lið Fjölnis og SA-Jötna að eigast við og hefst sá leikur klukkan 16:45. Klukkutíma síðar eða klukkan 17:45 leika síðan U18 ára lið SR og SA-Vikinga í Skautahöllinni í Laugardal. 
Sunndaginn spila síðan U18 ára liðin aftur þá SR við Jötna klukkan 09:00 og Fjölnir við Víkinga klukkan 10:00.

Föstudagskvöld og laugardagsmorgun verða síðan landsliðsæfingar fyrir U18 ára landslið drengja.

Útsendingar verða sem hér segir:

Dagur klukkan Leikur Streymisrás
Föstudagur 14. nóv 19:30 SR-FJO U16A ÍHÍ TV 1
Laugardagur 15. nóv 16:45 Topp deild karla SA-SR ÍHÍ TV 1
  16:45 FJO-JOT U18 ÍHÍ TV 2
  17:45 SR-Vík U18 SR streymi
  19:30 Topp deild kvenna SA-SR ÍHÍ TV 1
Sunnudagur  16. nóv 09:00 SR-JOT U18 ÍHÍ TV 1 eða SR streymi
  10:00 FJO-VIK U18 ÍHÍ TV 2

 

Youtube streymisrás SR má finna hér https://www.youtube.com/@sr-ishokki