Eftir erfiðan leik á móti Georgíu átti íslenska landsliðið góðan en kafla skiptan leik gegn Búlgaríu í gær (mánudag) en uppskáru afar sannfærandi sigur 8-4.
Strax í fyrsta leikhluta var greinilegt að íslenska landsliðið var búið að hrista af sér allan ferða-hrollinn og mættir á ísinn til að spila íshokkí. Eftir ýmsar þreifingar og nokkrar refsingar á báða bóga leit fyrsta mark leiksins ljós þegar lotan var rétt hálfnuð, eða á 9 mínútu, þegar Jóhann Már Leifsson tók eitt af sínu alþekktu “coast-to-coast” siglingum í gegnum allt Búlgarska liðið og kom pekkinum snyrtilega í netið. Unnar Rúnarsson og Róbert Pálsson voru honum þar til aðstoðar.
Þegar rétt um 2 mínútur lifðu lotunnar kom alveg ótrúlegur kafli hjá íslenska liðinu þar sem Unnar Rúnarsson, Hafþór Sigrúnarson og Uni Sigurðarsson Blöndal skoruðu mörk í öllum regnbogans litum. Ivan Hodulov náði rétt að klóra í bakkann fyrir Georgíu með einu heppnis marki, skot í skautann hjá Halldóri Skúlasyni sem rataði fram hjá Róberti Steingrímssyni sem átti annars frábæra lotu í marki Íslands. Kristján Hróar Jóhannesson lokaði svo lotunni fyrir Ísland þegar 15 sekúndur voru eftir af lotunni og skorði, laglegt, fyrsta karlalandsliðsmark.
Staðan eftir fyrstu lotu 5 - 1 fyrir Íslandi.
Strákarnir héldu uppteknum hætti í byrjun annarar lotu og Hafþór Sigrúnarson jók en á forsystu Íslands með góðu marki á 26 mínútu með aðstoð frá Unnari Rúnarssyni og Jóhanni Má Leifssyni. En þá tók við afar slæmur kafli hjá okkar strákum þar sem nær öll skynsemi í leik voru fyrir borð borin og fór liðið að raða inn refsimínútum. Varnartröllið Halldór Skúlason fékk t.d stóran dóm og brottvísun úr leik (5+GM) um miðbik lotunnar sem gaf þeim búlgörsku heilar 5 mínútur í yfirtölu, óuppsegjanlegar. Búlgarir gengur á lagið og skoruðu alls 3 mörk án þess að það íslenska næði að svara. Búlgarir greinilega komnir með vind í seglin og stemmningin þeirra megin í lotunni.
Staðan eftir aðra lotu orðin 6 - 4 fyrir Íslandi.
Eftir ærlegt tiltal frá þjálfarateyminu inn í búningsklefa og mikla hvatningu kom lið Íslands endurræst til leik í þriðju og síðustu lotuna. Viktor Mojzyszek skorði fyrir Ísland á 36 mínútu. Viggó Hlynsson og Róbert Pálsson með stoð. Unnar Rúnarsson bætti svo enn á markareikninginn þegar rétt um hálf mínúta lifði leiks. Jóhann Már Leifsson og Kristján Hróar Jóhanneson með stoð.
Loka niðurstaða 8 - 4 sigur fyrir Íslandi, í kaflaskiptum leik. Jóhann Már Leifsson var valinn besti leikmaður liðsins eftir leikinn.
Næsti leikur liðsins er næstkomandi miðvikudag kl.13:00 að staðartíma (kl.01:00 aðfaranótt miðvikudags að íslenskum tíma). Þar mætum við spútnik liði Kínverska Taípei (Taívan) og verður áhugavert að sjá hvernig okkar strákar spila á móti léttum og snöggum leikmönnum Taívan.
Textalýsingu leiksins er hægt að nálgast á vef Alþjóðasambandins, https://www.iihf.com/en/events/2025/wmiib/gamecenter/playbyplay/63289/4-isl-vs-bul
Einnig er hægt að horfa á streymi frá leikjunum, bæði í beinni og eftir á, á iihf.tv