Busun

Eiinn af vinsælli atburðum í landsliðsferðum, allavega ef maður er ekki í sinni fyrstu ferð, er busunin. Að þessu sinni var það rakstrarvélin sem var með í för og árangurinn má sjá á myndinni hérna að ofan. Þarna er á ferðinni Tómas Tjörvi Ómarsson sem greinilega hafði gott af klippingunni því hann náði stoðsendingu í sínum fyrsta landsleik sem hann lék í gær. Við óskum Tómasi og hinum nýliðunum til hamingju með áfangann og bíðum spenntir eftir leiknum á morgun gegn Serbum.

HH