Brynjumóti frestað.

Einsog fram kemur í frétt hérna að framan átti að halda Brynjumót í Skautahöll Akureyrar nú um helgina. Vegna veðurs hefur verið ákveðið að fresta mótinu en stefnt er að því að halda mótið 25. og 26. þessa mánaðar. Leikurinn í karlaflokki er hinsvegar enn á dagskrá en þó gæti hann færst eitthvað framar á daginn. Sérstök tilkynning um það verður birt hér vonandi seinna í dag.

HH