Stjórn ÍHÍ ákvað á síðasta fundi sínum að skipa nýjan formann aganefndar.
Árni Geir Jónsson sem verið hefur formaður aganefndar um árabil, óskaði eftir leyfi frá störfum.
Stjórnin fór þess á leit við Þórhall Viðarsson fyrrum formann sambandsins og aganefndarmann til fjölda ára að taka við formennsku í nefndinni fram að íshokkíþingi 2027. Þórhallur samþykkti að taka að sér verkefnið. Aðrir í nefndinni eru þeir sömu og áður.
Stjórn ÍHÍ vill koma á framfæri sérstöku þakklæti til Árna Geirs fyrir einstaklega vel unnin störf fyrir hreyfinguna og óskar honum als hins besta í þeim verkefnum sem hann nú tekst á við.