Björninn vann SR í gærkvöldi

Í gærkvöldi áttust við Björninn og SR í sinni síðustu viðureign í vetur.  Björninn gerði sér lítið fyrir og lagði SR að velli í jöfnum leik sem endaði 6 - 5. Loturnar fóru 2 - 3, 3 - 1 og 1 - 1. Leikurinn einkenndist af hraða og lítið var um brot þar sem annað liðið fékk þrjár refsingar í leiknum og hitt fjórar. Leikurinn sem slíkur var samt fínn og fékk sóknarleikurinn að njóta sín á kostnað varnarleiksins. Nokkuð var um forföll í SR-liðinu en maður kemur í manns stað.   

Mörk og stoðsendingar SR:

Arnþór Bjarnason 1/2
Ragnar Kristjánsson 1/1
Stefán Hrafnsson 1/1
Steinar Páll Veigarsson 1/1
Gauti Þormóðsson 0/1
Gunnlaugur Karlsson 0/1
Guðmundur Björgvinsson 0/1

Mörk og stoðsendingar Björninn:
 

Birgir Hansen 2/1
Daði Örn Heimisson 1/2,
Gunnar Guðmundsson 1/0
Úlfar Jón Andrésson 1/0 
Trausti Bergmann 1/0,
Sergei Zak 0/1
Snorri G. Sigurðsson 0/1