Björninn - SR 2. leikur í úrslitum


Frá leik liðanna sl. þriðjudag                                                                               Mynd: Höskuldur Höskuldsson

Björninn og Skautafélag Reykjavíkur léku sinn annan leik í úrslitakeppninni um íslandsmeistaratitilinn í íshokkí karla í gærkvöld. Leiknum lauk með sigri SR-inga sem gerðu 7 mörk gegn 4 mörkum Bjarnarmanna.

Áhorfendur þurftu ekki að bíða lengi eftir fyrsta markinu því áður en mínúta var liðin skoraði Daniel Kolar mark fyrir SR-inga þegar þeir nýttu sér að Bjarnarmenn voru einum færri á ísnum. Pétur Maack bætti síðan við öðru marki fyrir SR-inga á 6. mínútu  og staðan ágætlega vænleg fyrir gestin í byrjun. Ólafur Hrafn Björnsson minnkaði hinsvegar muninn fyrir Björninn  þegar lotan var rúmlega hálfnuð en rétt fyrir lotulok jók Daniel Kolar muninn aftur og staðan því 1 – 3 eftir fyrstu lotu.

Liðin slógu aðeins af hvað markaskorun varðaði í annarri lotu en í henni fór líka lítið fyrir að leikmenn kæmu í refsiboxið, því aðeins einn leikmaður fékk refsingu í lotunni. Á fjórðu mínútu hennar minnkaði Hjörtur Geir Björnsson muninn fyrir Bjarnmenn en SR-ingar svöruðu fyrir sig fjórum mínútum síðar með marki frá Robbie Sigurdson og staðan því 2 – 4 eftir aðra lotu.

SR-ingar bættu síðan við marki strax í upphafi þriðju lotu en þar var að verki Pétur Maack með sitt annað mark og staðan þeirra því orðin sterk. Bjarnarmenn gáfust hinsvegar ekki upp og skömmu síðar minnkaði Birkir Árnason fyrir þá muninn þegar liðið var manni fleira á ísnum. Næstu tvö mörk voru hinsvegar SR-inga, það fyrra átti Svavar Steinsen en það síðara Robbie Sigurdson. Hjörtur Geir Björnsson átti hinsvegar síðasta orðið hvað markaskorun varðaði þegar hann minnkaði muninn fyrir Bjarnarmenn tveimur mínútum fyrir leikslok.

Næsti leikur í úrslitakeppninni er á morgun laugardag og fer fram í Skautahöllinni í Laugardal og hefst klukkan 19.00.

Mörk/stoðsendingar Björninn:

Hjörtur Geir Björnsson 2/0
Ólafur Hrafn Björnsson 1/0
Birkir Árnason 1/0
Birgir Jakob Hansen 0/2
Sergei Zak 0/2
Matthías Skjöldur Sigurðsson 0/1

Refsingar Björninn: 22 mínútur.

Mörk/stoðsendingar SR:

Daniel Kolar 2/2
Pétur Maack 2/0
Robbie Sigurdsson 2/0
Svavar Steinsen 1/0
Egill Þormóðsson 0/2
Björn Róbert Sigurðarson 0/2
Snorri Sigurbjörnsson 0/1
Steinar Páll Veigarsson 0/1

Refsingar SR: 14 mínútur.

HH