Björninn - SR 2. fl.

Þeir sem mættu ekki á kvennaleikina um helgina og haldnir eru fráhvörfum vegna skorts á íshokkí er bent á að í kvöld leika Björninn og SR i öðrum flokki karla og hefst leikurinn klukkan 19.00 í Egilshöll. SR-ingar hafa fram að þessu unnið alla sína leiki í flokknum enda með stórskemmtilegt lið skipað reynslumiklum strákum. Bjarnarmenn ætla sjálfsagt að reyna að ná sínum fyrstu stigum í þessum flokki áður en árið er liðið og þarna er þeirra síðasti möguleiki.

HH