Björninn - SA Víkingar umfjöllun

Frá leiknum í gær
Frá leiknum í gær

SA Víkingar og Björninn áttust við í hörkuspennandi leik í -deildinni  í gærkvöld og réðust úrslit ekki fyrr en í framlengingu þegar Jussi Sipponen skoraði gullmarkið sem skildi liðin að í lokin.

Heimamenn sóttu meira fyrstu tvær loturnar en það var ekki fyrr en í upphafi annarrar lotu sem þeir náðu að skora en þar var Edmunds Induss að verki. Fátt markvert gerðist í töluverðan tíma eftir það nema hvað leikmenn liðanna skiptust á að heimsækja refsiboxið. Einum fleiri bætti Sigursteinn Atli Sighvatsson við marki fyrir Björninn og áður en lotan var úti hafði Úlfar Jón Andrésson komið þeim í vænlega 3 – 0 stöðu. Víkingar hófu hinsvegar stórsókn. Jón Benedikt Gíslason  leikmaður Víkinga kom þeim hinsvegar inn í leikinn með tveimur mörkum um miðja þriðju lotu og Mario Mjelleli jafnaði síðan metin tæpum fimm mínútum fyrir lotulok. Hvorurg liðið náði að skora sem eftir lifði leiks og því framlengt. Lengi vel leit út fyrir að vítakeppni þyrfti til en um miðja framlengingu missti Björninn mann af velli. Rúmum 20 sekúndum fyrir leikslok tryggði Jussi Sipponen þeim svo sigurinn einsog áður sagði.

Með sigrinum halda Víkingar toppsæti deildarinnar en fimm stig eru í Esju sem koma næstir.

Mörk/stoðsendingar Bjarnarins:
Sigursteinn Atli Sighvatsson 1/1
Úlfar Jón Andrésson 1/0
Edmunds Induss 1/0
Falur Birkir Guðnason 0/1
Jón Árni Árnason 0/1
Elvar Freyr Ólafsson 0/1

Refsingar Bjarnarins: 26 mínútur

Mörk/stoðsendingar SA Víkinga
Jón Benedikt Gíslason 2/1
Jussi Sipponen 1/1
Mario Mjelleli 1/0
Ingvar Þór Jónsson 0/2
Orri Blöndal 0/1

Refsingar SA Víkinga: 12 mínútur.

Mynd: Gunnar Jónatansson

HH