Björninn - SA úrslitakeppni kvenna

Í kvöld fer fram annar leikurinn í úrslitakeppni kvenna en þá mætast í Egilshöllinni lið Bjarnarins og Skautafélags Akureyrar. Leikurinn hefst klukkan 19.30. Í úrslitakeppni kvenna er að þessu sinni leikið þangað til annað liðið hefur náð að landa þremur sigrum.

Fyrsti leikur liðanna fór fram á laugardaginn síðasta og í honum unnu norðanstúlkur 3 - 0 sigur þannig að staðan í einvíginu er 1 - 0 þeim í vil.


HH