Björninn - SA 2. leikur í úrslitum


Frá leik liðanna fyrr í vetur                                                                                            Mynd: Elvar Freyr Pálsson

Á morgun fimmtudag fer fram annar leikurinn í úrslitakeppninni um íslandsmeistaratitilinn í meistaraflokki kvenna. Þá mætast Björninn og SAog fer leikurinn fram í Egilshöll og hefst klukkan 19.30.

Fyrsti leikur úrslitanna fór fram í gær, þriðjudag, og endaði með sigri SA sem gerðu sjö mörk gegn þremur mörkum Bjarnarkvenna. Staðan þegar tvær mínútur voru eftir var hinsvegar 5 – 3 og því hægt að eiga von á spennandi leik á morgun.

Rétt einsog við sögðu frá í gær þá glíma Bergþóra H. Bergþórsdóttir Ásynja og Hanna Rut Heimisdóttir Bjarnarkona við meiðsli og ólíklegt að þær verði með.

HH