Birting fundargerða..

Á fundi í stjórn ÍHÍ nýverið lagði Margrét Ólafsdóttir fram tillögu um að fundargerðir stjórnar ÍHÍ yrðu birtar opinberlega á heimasíðu sambandsins Fundarmenn tóku jákvætt í málið og var tillagan samþykkt samhljóða. Fundargerðir eru settar inn eftir starfsárum stjórnar og byrjað verður með fundargerðir stjórnar sem sat 2006-7. Smátt og smátt munu fleiri fundargerðir bætast í safnið þangað til öllum fundargerðum hefur verið náð. Eftir það verða fundargerðir settar inn jafnóðum og þær hafa verið samþykktar í stjórn. Fundargerðirnar má finna undir tenglinum "Stjórn" hér til vinstri á síðunni.

HH