Aseta - bikarmót

Við höfum verið beðnir um að birta aftur dagskrá og reglur Aseta-bikarmótsins sem fer fram um næst helgi, þ.e. 7. og 8 september í Egilshöll.

Hér er tímatafla leikjanna.

 
 
 
 
Tími
 
 
 
 
 
1. leikur
Björninn
SA
föstud.
19:20
 
 
 
 
 
2. leikur
SR
Narfinn
föstud.
20:35
 
 
 
 
 
3. leikur
SR
SA
föstud.
21:50
 
 
 
 
 
4. leikur
Narfinn 
Björninn
föstud.
23:05
 
 
 
 
 
5. leikur
Björninn
SR
laugard
18:20
 
 
 
 
 
6. leikur
SA
Narfinn
laugard.
19:35
 
 
 
 
 
3-4 sæti
 
 
laugard.
20:50
 
 
 
 
 
1-2 sæti
 
 
laugard.
22:05
 
 
Og hér koma svo reglurnar:

1. gr.
Allar almennar reglur úr reglubók ÍHÍ gilda um leiki í mótinu nema að annað sé tekið fram.
Stjórn ÍHÍ skal tilnefna mótsstjóra fyrir þetta helgarmót. Mótsstjóri sér um að boða fundi mótsstjórnar og stýrir þeim. Hvert félag sem skráð er til þátttöku skal tilnefna einn fararstjóra í mótsstjórn. Mótsstjórn hefur fullt umboð mótanefndar ÍHÍ og aganefndar ÍHÍ á meðan á mótinu stendur. Þannig hefur mótsstjórnin heimild til þess að bregða út af auglýstri dagskrá og beita leikmenn eða forráðamenn liða refsingum fyrir agabrot. Allar slíkar ákvarðanir skulu samþykktar af einföldum meirihluta mótsstjórnar þar sem hver fulltrúi í mótsstjórn hefur eitt athvæði.
Refsingar og úrskurðir mótsstjórnar skulu ekki ná útfyrir mótið sjálft. Aganefnd ÍHÍ hefur fulla heimild til þess að taka á málum sem koma upp í samræmi við reglugerð um aganefnd ef ástæða er til, hvort sem mótsstjórn hefur úrskurðað eða ekki, og er aganefnd ekki bundin af ákvörðun mótsstjórnar. 
 
2. gr.
Hver leikur er 2 x 15 mínútur og er svellið heflað á milli leikja. Fimm mínútna hálfleikur er tekinn milli leikhluta.
 
3. gr.
Sigurleikur gefur þrjú stig. Verði jafntefli skal hvort lið fá eitt stig en haldinn vítakeppni um þriðja stigið.  Þ
ar fær hvort lið 3 víti. Náist ekki úrslit er háður vítabráðabani.  Hvert lið skal í upphafi móts skila inn lista með 10 vítaskyttum. Komi til vítakeppni skulu vítaskyttur taka vítin eftir þeirri röð sem er á listanum. Verði lið fyrir því að leikmaður sem er á vítalista meiðist er því heimilt að skipta inn nýjum manni á listann. Hafi ekki náðst úrslit að 10 vítum loknum skal byrja aftur á byrjun listans. Það lið sem vinnur vítakeppni skal hreppa aukastigið sem er í boði.
 
4. gr.
Séu lið jöfn að stigum eftir forkeppni gildir markatala en sé hún einnig jöfn gildir markatala í innbyrðis viðureignum. Sé hún einnig jöfn skal fara að reglum um vítakeppni sem getið er um í 3. gr.
 
5. gr.
Leiknar skulu tvær umferðir. Dregið skal um hvaða lið leikur tvo leiki í röð  komi til þess og skal það vera í höndum framkvæmdastjóra ÍHÍ.
 
6. gr.
Allir íslenskir leikmenn skulu hafa leikheimild með því liði sem þeir spila með á mótinu. Hverju liði er heimilt að hafa að hámarki tvo erlenda leikmenn í liði sínu án leikheimildar. Liðinu ber tveimur dögum fyrir mót að tilkynna mótsstjóra um hvaða erlendu leikmenn er að ræða.
 
7. gr.
Liðið sem skipar efsta sæti eftir riðlakeppni skal leika til úrslita við liðið í öðru sæti um sigur í mótinu. Liðin í 3. og 4. sæti leika um þriðja sæti.

HH