Æfingabúðir landsliðs.

Eftir að hafa farið vandlega yfir veðurspá og rætt við Vegagerðina hefur verið ákveðið að gera aðra tilraun til að fara norður. Gert er ráð fyrir að rútan komi í skautahöllina í Laugardalnum klukkan 08.15  í fyrramálið og verði komin í Egilshöll 08.45. Leikmenn eru beðnir að vera tilbúnir á þessum tímum, þ.e. það á ekki að fara að pakka dótinu heldur verður lagt af stað fljótlega eftir þetta.

Það eru hinsvegar vinsamleg tilmæli að leikmenn og aðrir aðstandendur kíkji hérna við snemma í fyrramálið. Hringt verður í Vegagerðina eldsnemma og ef verður frestað birtist frétt um það hér. Annars stendur ferðin.

Einnig má benda á að á síðu 471 á textavarpi RÚV má sjá hvernig færðin er norður.

HH