Æfingabúðir kvennalandsliðs


Úr leik Íslands og Rúmeníu á HM 2011                                                                                                   Mynd: Elvar Freyr Pálsson

Um komandi helgi verða haldnar æfingabúðir fyrir kvennalandsliðið og fara þær fram í Egilshöll og Laugardal. Dagskráin verður birt síðar í dag eða í kvöld en unnið er að því að tryggja næga ístíma. 

Þremur leikmönnum hefur verið bætt í hópinn síðan hann var tilkynntur. Þeir leikmenn eru:

Guðbjörg Kristín Grönvold
Ásdis Birna Hermansdóttir
Kristín Ómarsdottir

Richard Tahtinen þjálfari mun stjórna búðunum. Þeir leikmenn sem hafa ekki tök á því að mæta eru beðnir að tilkynna það í tölvupósti til ihi@ihi.is

Dagskráin verður birt hérna hægra meginn á síðunni undir "Næstu leikir" um leið og hún berst.

HH