Æfingabúðir fyrir U18 landsliðið

Sergei Zak aðalþjálfari U18 ára landsliðsins hefur blásið til æfingabúða um aðra helgi, þ.e. dagana 12. - 14. janúar.  Æfingabúðirnar fara fram á Akureyri en óhætt er að segja að þessi sama helgi verði mikil hokkíhelgi því samhliða fer fram eitt af 4. flokks mótum vetrarins auk þess sem meistaraflokkar SA og SR eigast við á laugardagskvöldið.
 
Í leikmannahópnum eru um 30 leikmenn en Sergei mun skera hópinn niður strax að loknum æfingabúðum, þó ekki alveg niður í endanlega stærð.  Frekari upplýsingar um æfingabúðirnar má finna undir U18 linknum hérna til vinstri á síðunni.