3. flokkur - mótahald.

Stjórn ÍHÍ samþykkti á fundi sínum í hádeginu tillögu mótanefndar um breytt mótahald í 3ja flokki. Mótahald 3ja flokks þetta keppnistímabil samanstendur af fjórum mótum. Tvö mót verða haldin á Akureyri og önnur tvö mót í Reykjavík. Með þessu móti er vonast til að spilamennska 3ja flokks aukist ásamt því að mótahald einfaldast. Gert er ráð fyrir að fyrsta mót vetrarins verði um miðjan október og að það mót verði á Akureyri en allar nánari fréttir um þetta munu birtast hér á heimasíðunni. Þetta þýðir að sjálfsögðu að allir leikir 3ja flokks sem birst hafa í fyrra mótaplani eru felldir niður.

HH