2017 IIHF ICE HOCKEY WORLD CHAMPIONSHIP Div. II Group A

A landslið karla er komið til Galati, Rúmeníu og mun taka þátt í heimsmeistaramóti karla í annarri deild, riðli A, eða 2017 IIHF ICE HOCKEY WORLD CHAMPIONSHIP Div. II Group A. Mótið fer fram 3. til 9. apríl næstkomandi. Þáttökuþjóðir auk Íslands, eru Spánn, Ástralía, Rúmenía, Belgia og Serbía.

  • Leikir íslenska liðsins:

  • Mánudaginn 3. apríl er leikur við Spán og hefst leikurinn kl 13:30 á íslenskum tíma.
  • Þriðjudaginn 4. apríl er leikur við Ástralíu og hef leikurinn kl 10:00 á íslenskum tíma.
  • Fimmtudaginn 6. apríl er leikur við Rúmeníu og hefst leikurinn kl 17:00 á íslenskum tíma.
  • Föstudaginn 7. apríl er leikur við Belgíu og hefst leikurinn kl 13:30 á íslenskum tíma.
  • Sunnudaginn 9. apríl er leikur við Serbíu og hefst leikurinn kl 13:30 á íslenskum tíma.

Nánari upplýsingar um stöðu leikja og beint streymi má finna á vef Alþjóða Íshokkísambandsins, IIHF, Ýta hér.

Liðið hefur tekið smávægilegum breytingum undanfarna daga og er endanlegur hópur svona skipaður:

Andri Már Mikaelsson Jónas Breki Magnússon
Aron Knútsson Kristján Albert Kristinsson
Bergur Árni Einarsson Ólafur Hrafn Björnsson
Dennis Hedström Pétur Maack
Edmunds Induss Robbie Sigurdsson A
Einar Sveinn Guðnason Róbert Freyr Pálsson
Elvar Snær Ólafsson Robin Hedström
Hjalti Jóhannsson Sigurður Freyr Þorsteinsson
Ingvar Þór Jónsson C Snorri Sigurbergsson
Jóhann Leifsson Steindór Ingason
Jón Árni Árnason Úlfar Jón Andrésson A

 

Þjálfarar eru Magnus Blarand, Josh Popsie og Sigurður Sveinn Sigurðsson, sem er einnig liðstjóri.

Tækjastjóri er Leifur Ólafsson og sjúkraþjálfari Emanuel Sanfilippo.