2. leikur í úrslitum





Frá leik liðanna í gærkvöld                                                                                                Mynd: Hákon Björnsson


Á morgun, fimmtudag, verður annar leikurinn í úrslitakeppninni um íslandsmeistaratitilinn í íshokkí þegar Björninn og SR mætast. Leikurinn fer fram í Egilshöll og hefst klukkan 19.00. 

Eins og fram kom hérna á síðunni fyrr í dag unnu Bjarnarmenn fyrsta leikinn með sjö mörkum gegn fimm í hörkuspennandi og skemmtilegum leik í gærkvöld. 

Ekki er vitað um meiðsli í herbúðum liðanna en vitað er að Richard Tahtinen er farinn erlendis með kvennalandsliðinu og leikur því ekki með Birninum annað kvöld. Daniel Kolar hlaut högg á hendi í leiknum en þegar þetta er ritað liggur ekki ljóst fyrir hvort hann verður með á morgun eður ei.

HH