1. leikur í úrslitum kvenna; SA - Björninn 3 - 0

Fyrsti leikur í úrslitaviðureign SA-Valkyrja og Bjarnarins í meistaraflokki kvenna fór fram á Akureyri í dag.  Heimastúlkur báru sigur úr býtum í þessum fyrsta leik 3 - 0 og hafa því yfir 1 - 0 í einvíginu, en þrjá leiki þarf til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.

Loturnar fóru 0 - 0, 2 - 0 og 1 - 0.

Mörk og stoðsendingar
Hrund Thorlacius 1/1, Sarah Smiley 1/0, Birna Baldursdóttir 1/0, Díana Björgvinsdóttir 0/1,

Brottvísanir SA:  10 mín
Brottvísanir Bjarnarins:  6 mín.

Aðaldómari leiksins var Orri Sigmarsson og línumenn voru Ómar Smári Skúlason og Andri Mikaelsson.


Næsti leikur fer fram á heimavelli Bjarnarins í Egilshöllinni í Grafarvogi á mánudaginn.
Ljósmyndina tók Ásgrímur Ágústsson á leiknum í dag.