1. leikur deildarinnar í kvöld

Jæja gott fólk þá er komið að því að deildin okkar fari í gang á nýju ári. Síðdegis í dag nánar klukkan 17:00 eigast við á Akureyri SA og SR.
Því miður er útstöð okkar fyrir útsendingar á netinu á Akureyri ekki tilbúin þannig að leikurinn verður ekki í beinni á netinu að þessu sinni. :-( Vonast er til að innan 2 vikna verði útstöðvarnar á Akureyri og í Egilshöll komnar í gang.
Leikurinn verður slegin inn í kerfið síðar í kvöld.