Úrskurður aganefndar 2005-02-11 Mál nr. 02

Úrskurður aganefndar 2005-02-11     Mál nr. 02
 
Aganefnd ÍHÍ
Símafundur haldinn fimmtudaginn 10. febrúar og aftur föstudaginn 11. feb. 2005.
Mættir voru: Bjarni Kr. Grímsson, Kristján Maack og  Jón Heiðar Rúnarsson
 
Aganefnd 2005-02-11, mál 2.
Leikur SR og Bjarnarins í meistaraflokki karla miðvikudaginn 26. janúar 2005.

 
Fyrir var tekin leikskýrsla úr leik SR og Bjarnarins í meistaraflokki karla miðvikudaginn 26. janúar 2005 og atvikaskýrsla dómara úr sama leik.
 
Á 54. mínútu fær leikmaður Bjarnarins nr. 39, Hrólfur M. Gíslason leikdóm (MP) fyrir að sparka (regla 535). Aðdragandi brotsins er sá að leikmaður SR nr. 17 hóf átök við leikmann Bjarnarins nr. 39, en að þeim loknum réðist leikmaður Bjarnarins nr. 39 skyndilega á leikmann SR nr. 17 og kippti höði hans til og rekur annað hnéið í andlit andstæðingsins.

Samkvæmt reglum ÍHÍ og IIHF hefur aganefnd heimild til að þyngja refsingu fyrir hvert það atvik sem að getið er í leikskýrslu og innifelur Brottvísun úr leik eða þyngri refsingu. Samkvæmt reglum skal hver leikmaður sem fær leikdóm (MP) fá eins leiks leikbann hið minnsta. Þau tilmæli hafa hinsvegar verið frá stjórn ÍHÍ að leikdómi fyrir slagsmál fylgi tveggja leikja bann. Telur aganefndin að hér sé full ástæða til að beita þessu ákvæði.


Úrskurður Aganefndar

Leikmaður Bjarnarins nr. 39, Hrólfur M. Gíslason er hér með úrskurðaður í tveggja leikja bann í meistaraflokki karla.
 


Reykjavík  11. febrúar 2005
 
Aganefnd ÍHÍ
 
Bjarni Kr. Grímsson,  Kristján Maack, Jón Heiðar Rúnarsson