Úrskurður aganefndar 2004-12-04 Mál nr. 02

Aganefnd ÍHÍ
Símafundur haldinn föstudaginn 3. desember 2004.
Mættir voru: Bjarni Kr. Grímsson, Kristján Maack og  Jón Heiðar Rúnarsson
 
Aganefnd 2004-12-04, mál 2.


Fyrir var tekin leikskýrsla úr leik SA og Bjarnarins í meistaraflokki karla laugardaginn 27. nóvember 2004 og atvikaskýrsla dómara úr sama leik.
 
Á 51. mínútu fær leikmaður SA nr. 25, Jan Kobezda brottvísun úr leik (GM) fyrir að hefja slagsmál við andstæðing nr. 24 hjá Birninum. Í framhaldi eftir að línuverðir hafa stöðvað slagsmálin hendir leikmaður nr. 25 hjá SA vatnsbrúsa í leikmann andstæðings nr. 24 hjá Birninum og fær leikdóm (MP) fyrir grófa framkomu gagnvart starfsfólki í refsiboxi og andstæðingi.
 
Í sama tilviki kemur leikmaður Bjarnarins nr. 39, Hrólfur M. Gíslason inn í slagsmálin og fær hann leikdóm (MP) fyrir að koma sem þriðji maður inn í slagsmál.

Samkvæmt reglum ÍHÍ og IIHF hefur aganefnd heimild til að þyngja refsingu fyrir hvert það atvik sem að getið er í leikskýrslu og innifelur Brottvísun úr leik eða þyngri refsingu. Samkvæmt reglum skal hver leikmaður sem fær leikdóm (MP) fá eins leiks leikbann hið minnsta. Þau tilmæli hafa hinsvegar verið frá stjórn ÍHÍ að leikdómi fyrir slagsmál fylgi tveggja leikja bann. Telur aganefndin að hér sé full ástæða til að beita þessu ákvæði.


Úrskurður Aganefndar

Leikmaður SA nr. 25, Jan Kobezda er hér með úrskurðaður í tveggja leikja bann í meistaraflokki karla.
Leikmaður Bjarnarins nr. 39, Hrólfur M. Gíslason er hér með úrskurðaður í tveggja leikja bann í meistaraflokki karla.
 


Reykjavík  5. desember 2004
 
Aganefnd ÍHÍ
 
Bjarni Kr. Grímsson,  Kristján Maack, Jón Heiðar Rúnarsson