Úrskurðir aganefndar frá 10. febrúar 2004

Aganefnd ÍHÍ
Símafundur haldinn þriðjudaginn 10. febrúar 2004.
Mættir voru: Magnús Einar Finnsson, Kristján Maack og Bjarni Kr. Grímsson

Fyrir var tekin leikskýrsla úr leik SA og Bjarnarins í mfl. flokki laugardaginn 31. janúar 2004.
Leikmaður SA nr. 7 Einar Guðni Valentine fékk Stóra-dóm og Leikdóm (MP) fyrir blaðstungu á 49. mín.

Úrskurður Aganefndar
Samkvæmt reglum ÍHÍ skal hver leikmaður sem fær leikdóm (MP) fá eins leiks leikbann hið minnsta. Með hliðsjón af alvarleika brotsins er leikmaður SA , Einar Guðni Valentine, hér með úrskurðaður í tveggja leikja bann í mfl. flokki.

Akureyri 10. febrúar 2004

Aganefnd ÍHÍ

Magnús Einar Finnsson, Kristján Maack, Bjarni Kr. Grímsson

Einnig.

Fyrir var tekin leikskýrsla úr leik Bjarnarins og SR í mfl. flokki fimmtudaginn 5. febrúar 2004 og atvikaskýrsla dómara úr sama leik.
Leikmaður Bjarnarins nr. 2 Hrólfur Gíslason fékk Stóra-dóm og Leikdóm (MP) fyrir að sparka í leikmann SR á 60. mín.

Úrskurður Aganefndar
Samkvæmt reglum ÍHÍ skal hver leikmaður sem fær leikdóm (MP) fá eins leiks leikbann hið minnsta. Með hliðsjón af alvarleika brotsins er leikmaður Bjarnarins, Hrólfur Gíslason, hér með úrskurðaður í tveggja leikja bann í mfl. flokki.

Akureyri 10. febrúar 2004

Aganefnd ÍHÍ

Magnús Einar Finnsson, Kristján Maack, Bjarni Kr. Grímsson