Úrskurður 14. janúar 2004

Aganefnd ÍHÍ
Símafundur haldinn miðvikudaginn 14. janúar 2004.
Mættir voru: Magnús Einar Finnsson og Kristján Maack
Fjarverandi: Bjarni Kr. Grímsson

Fyrir var tekin leikskýrsla úr leik SR og Bjarnarins þriðjudaginn 2. desember 2003 og atvikaskýrsla dómara úr sama leik.
Leikmaður Bjarnarins nr. 2 Hrólfur Gíslason fékk Leikdóm (MP) fyrir að skalla leikmann SR nr. 16 í andlitið

Úrskurður Aganefndar
Samkvæmt reglum ÍHÍ skal hver leikmaður sem fær leikdóm (MP) fá eins leiks leikbann hið minnsta. Þau tilmæli hafa hinsvegar verið frá stjórn ÍHÍ að leikdóm fyrir slagsmál fylgi tveggja leikja bann. Með hliðsjón af því umrætt brot er í eðli sínu árás á andstæðingin er leikmaður Bjarnarins, Hrólfur Gíslason, hér með úrskurðaður í tveggja leikja bann.

Akureyri 14. janúar 2004

Aganefnd ÍHÍ

Magnús Einar Finnsson, Kristján Maack