Úrskurður Aganefndar 19.11.2010

Tekin er fyrir atvikaskýrsla úr leik SA Jötna og SA Víkinga í meistarflokki karla sem leikinn var þann 02.11.10. 
Þjálfari SA Víkinga, Josh Gribben, hlaut brottvísun úr leik og færist brot hans til bókar. Við aðra brottvísun úr leik fer hann sjálfkrafa í leikbann.

Tekin er fyrir atvikaskýrsla úr leik Bjarnarins og SA Jötna í meistarflokki karla sem leikinn var þann 09.11.10. 
Leikmaður Bjarnarins nr. 12, Carl Andreas Sveinsson, var uppvís að slagsmálum og hlaut Leikdóm (MP) og fer því sjálfkrafa í eins leiks bann.

Tekin er fyrir atvikaskýrsla úr leik Bjarnarins og SA Jötna í meistaraflokki karla sem leikinn var þann 16.11.10.
Leikmaður SA Jötna nr. 18 Rúnar Freyr Rúnarsson hlaut tvo Misconduct dóma og því sjálfkrafa brottvísun úr leiknum (Game Misconduct.).
Úrskurður: Brotið færist til bókar og við aðra brottvísun úr leik fer leikmaðurinn, Rúnar Freyr, sjálfkrafa  í eins leiks bann.


F.h. Aganefndar
Viðar Garðarsson
formaður