Úrskurður aganenfdar 18.02.2009

Atvikaskýrsla úr leik Skautafélags Akureyrar og Skautafélags Reykjavíkur  leikinn þann 14.02.09. Leikmaður Skautafélags Reykjavíkur nr. 9 Árni Valdimar Bernhöft hlaut brottvísun úr leiknum (Game Misconduct).
Úrskurður: Brotið færist til bókar og við aðra brottvísun úr leik fer leikmaðurinn sjálfkrafa  í eins leiks bann.


Atvikaskýrsla úr leik Skautafélags Akureyrar og Skautafélags Reykjavíkur  leikinn þann 14.02.09. Leikmaður Skautafélags Reykjavíkur nr. 17 Guðmundur Björgvinsson hlaut tvo tíu mínútna áfellisdóma (Misconduct) og því sjálfkrafa brottvísun úr leiknum (Game Misconduct).
Úrskurður: Brotið færist til bókar og við aðra brottvísun úr leik fer leikmaðurinn sjálfkrafa  í eins leiks bann.

Viðar Garðarson
formaður aganefndar