Úrskurður 19.1.2007

Fundur haldinn í aganefnd þ. 19.01.2007 klukkan 20.45. Mættir voru Viðar Garðarsson, Bjarni Grímsson og Jón Heiðar Rúnarsson. Fyrir var tekið mál úr leik Bjarnarins og Skautafélags Akureyrar sem leikinn var 16.12.2006. Fyrir liggur og leikskýrsla og atvikaskýrsla frá dómara. Leikmaður Bjarnarins númer 19, Róbert Freyr Pálsson er hér með úrskurðaður í 2ja leikja bann í þriðja aldursflokki.