úrskurður 30.11.2006

Úrskurður 30.11.2006
Reykjavík 30.11.2006
 
Í leik Bjarnarins og SR sem leikin var 28.11.2006 í Egilshöllinni fengu eftirtaldir leikmenn leikdóm (Match penalty)
Leikmaður Bjarnarins númer 12 Þórhallur Þór Alfreðsson
Leikmaður Bjarnarins númer 32 Bergur Árni Einarsson
Leikmaður Bjarnarins númer 92 Hrólfur M. Gíslason
 
Í leikreglum okkar segir um Leikdóm:
 
507 Leikdómur
Fyrir leikdóm, skulu allir leikmenn, gildir einnig um markmann og starfsmenn liðsins, tafarlaust hverfa til búningsklefa það sem eftir lifir leiks. Skipting er leyfð eftir 5 mínútur.
 
Ø  Leikmaður liðs sem fær leikdóm, fær sjálfkrafa viðbótar leikbann, þetta þýðir að leikmaðurinn skal hljóta leikbann í næsta leik að lágmarki, og mál hans meðhöndlað af viðeigandi yfirvaldi.
 
Úrskurður er hér birtur í samræmi við reglugerð ÍHÍ númer 8 grein 12 en þar segir:
 
8.12 Innifeli leikskýrsla sjálfvirka útilokun leikmanns úr næsta leik án þess að mál hans sé meðhöndlað frekar hjá nefndinni er formanni nefndarinnar heimilt að birta úrskurð á heimasíðu sambandsins án þess að boða til fundar. Sama gildir ef að um er að ræða uppsafnaða refsingu. Formaður skal sjá til að slíkar gjörðir séu færðar til bókar í fundargerð næsta fundar aganefndar.
 
 
Úrskurður:
Til samræmis við ofanritað skulu ofantaldir leikmenn hljóta eins leiks bann
Leikmaður Bjarnarins númer 12 Þórhallur Þór Alfreðsson          
Leikmaður Bjarnarins númer 32 Bergur Árni Einarsson
Leikmaður Bjarnarins númer 92 Hrólfur M. Gíslason
Úrskurður þessi tekur gildi nú þegar.
 
 
 
Reykjavík 30.11.2006
Fyrir hönd aganefndar ÍHÍ
 
 
Viðar Garðarsson (sign)
formaður aganefndar