Úrskurður Aganefndar 21.01.2015

Tekin er fyrir atvikaskýrsla dómara úr leik Skautafélags Reykjavíkur og UMFK Esju í meistaraflokki karla sem leikinn var þann 20.01.2015.

Leikmaður SR, #17 Robbie Sigurðson  hlaut tvo persónulega dóma og því sjálfkrafa  brottvísun úr leik (GM) fyrir óíþróttamannslega framkomu.
Úrskurður: Brotið færist til bókar  og við aðra brottvísun úr leik fer leikmaðurinn sjálfkrafa í eins leiks bann.

Tekin er fyrir atvikaskýrsla dómara úr leik SA Víkinga og Bjarnarins í meistaraflokki karla sem leikinn var þann 20.01.2015.

Leikmaður Bjarnarins, #16 Hrólfur M. Gíslason  hlaut brottvísun úr leik (GM) fyrir slagsmál.
Úrskurður: Brotið færist til bókar  og við aðra brottvísun úr leik fer leikmaðurinn sjálfkrafa í eins leiks bann.

Leikmaður Bjarnarins, #88 Brynjar Bergmann hlaut brottvísun úr leik (GM) fyrir óíþróttamannslega framkomu.
Úrskurður: Brynjar Bergmann hlaut þ. 11.11.2014 brottvísun úr leik. Leikmaðurinn hlýtur einn leik í bann.

Leikmaður Víkinga, #71 Gunnar Darri Sigurðsson hlaut leikdóm (MP) fyrir að vera þriðji maður  í slagsmál.
Úrskurður: Gunnar Darri Sigurðsson hlýtur einn leik í bann. Bannið er allsherjarbann. 

Fh. Aganefndar
Viðar Garðarsson, formaður