Úrskurður Aganefndar 11.11.11

Tekin er fyrir atvikaskýrslur úr leik Bjarnarins og  Skautafélags Reykjavíkur í meistara flokki karla sem leikinn var þann 08.11.2011.

Leikmaður Bjarnarins nr. 92 Ólafur Hrafn Björnsson hlaut brottvísun úr leik (GM) fyrir óíþróttamannslega framkomu.
Úrskurður: Leikmaðurinn hlaut þ. 18.10 sl. brottvísun úr leik og er þetta því hans önnur brottvísun. Ólafur Hrafn Björnsson hlýtur einn leik í bann. Bannið er allsherjarbann.

Leikmaður Bjarnarins nr. 7 Mika Moilanen hlaut leikdóm. (MP) fyrir að sparkam(Kicking).
Úrskurður: Leikmaðurinn hlýtur sjálfkrafa einn leik í bann. Um allsherjarbann er að ræða.

Leikmaður Skautafélags Reykjavíkur nr. 18 Robbie Sigurðsson hlaut brottvísun úr leik. (GM) fyrir óíþróttamannslega hegðun(Misconduct).
Úrskurður: Brotið færist til bókar og við aðra brottvísun úr leik fer leikmaðurinn sjálfkrafa í eins leiks bann.

Leikmaður Skautafélags Reykjavíkur nr. 21 Björn Róbert Sigurðsson hlaut brottvísun úr leik. (GM) fyrir óíþróttamannslega hegðun(Misconduct).
Úrskurður: Brotið færist til bókar og við aðra brottvísun úr leik fer leikmaðurinn sjálfkrafa í eins leiks bann.

Leikmaður Skautafélags Reykjavíkur nr. 5 Steinar Páll hlaut brottvísun úr leik. (GM) fyrir óíþróttamannslega hegðun(Misconduct).
Úrskurður: Brotið færist til bókar og við aðra brottvísun úr leik fer leikmaðurinn sjálfkrafa í eins leiks bann.

Leikmaður Skautafélags Reykjavíkur nr. 5 Steinar Páll hlaut einnig leikdóm. (MP) fyrir að ógna dómara.
Úrskurður: Leikmaðurinn hlýtur sjálfkrafa einn leik í bann.

Vísað er til bókunar frá aganefndarfundi þ. 11-11-2008 þar sem m.a. segir: Leikmenn sem eru að taka út refsingar í einum aldursflokki geta ekki leikið með öðrum aldursflokkum á meðan þeir eru að taka út leikbann sitt. Leikmenn geta þó aldrei tekið út fleiri leiki í bann í öðrum flokkum en sem nemur þeim leikjum sem fékkst fyrir frumbrotið.

Á þetta við hvort sem leikmenn hljóta leikdóm (Match Penalty (MP)) eða safna tveimur brottvísunum úr leik (Game Misconduct (GM)).

f.h Aganenfdar

Stefán Örn Þórisson
formaður