Úrskurður Aganefndar 11. febrúar 2020

Tekin er fyrir atvikaskýrsla úr leik Skautafélags Reykjavíkur (SR) og Skautafélags Akureyrar (SA) í mfl. karla sem leikinn var 8. febrúar 2020.

Í atvikaskýrslu kemur fram að leikmaður SR, Aron Knútsson, nr. 19 hafi slegið leikmann SA nr. 2 í aftan í hausinn og fær við það game misconduct dóm, fyrir slashing sbr. reglu 159 iii.

Úrskurður Aganefndar: 

Atvikið færist til bókar og við aðra brottvísun úr leik fer leikmaður sjálfkrafa í eins leiks bann.

Fh. Aganefndar

Hallmundur Hallgrímsson