Yfirlýsing frá stjórn ÍHÍ vegna frestaðra leikja

Yfirlýsing stjórnar ÍHÍ

Af óviðráðanlegum orsökum og í fordæmalausum aðstæðum, voru gerðar breytingar á mótadagskrá í meistaraflokki karla sem hefur reynst erfitt að leysa. Mótanefnd sambandsins hefur sett fram lausn sem er samþykkt af nefndinni en ljóst er að þessi tillaga er mis hagfelld fyrir aðildarfélög sambandsins. Það er lítið svigrúm í mótaskrá þar sem stutt er í fyrsta leiki í úrslitum.

Í kjölfar þess kom fram beiðni frá Umf Fjölni þar sem félagið hefur óskað eftir að fá að gefa næstu þrjá leiki sína í mfl karla, án þess að sektarákvæðum reglugerðar um aganefnd verði beitt. Stjórnin fellst á þetta í ljósi þess að mótadagskrá riðlaðist verulega vegna þess áfalls sem hreyfingin varð fyrir. 

Stjórn sambandsins samþykkir að meistaraflokkur Fjölnis í karla flokki fái að gefa leiki eftirtalda leiki án sekta.

Þriðjudaginn 24. feb Fjölnir - SA #33
Þriðjudagurinn 3. mars SA-FJO #36
Fimmtudagurinn 5 mars SR-FJO #31

Stjórn sambandsins ítrekar að hér er um einstaka afgreiðslu að ræða sem ekki er hægt að horfa á sem fordæmi. Fallist er á þau rök sem lögð hafa verið fram í ljósi þess áfalls sem hreyfingin varð fyrir og afleiðinga þess á mótadagskrá.