Úrslitakeppni kvenna 2022

Meistaraflokkur kvenna hjá Skautafélagi Akureyrar eru deildarmeistarar í Hertz-deildinni 2022 eftir frækilega baráttu við Fjölni og Skautafélag Reykjavíkur.

SA tryggði sér þannig heimaleikjaréttinn í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn.  Í öðru sæti í deildinni í vetur varð Fjölnir og munu stelpurnar í Grafarvoginum heimsækja Akureyri í fyrsta leik úrslita.

Úrslitakeppnin 2022 hefst þriðjudaginn 5. apríl kl 19:30 í Skautahöllinni á Akureyri. 

Úrslitakeppnin er best-of-five eða það lið sem verður fyrra til að vinna þrjá leiki er Íslandsmeistari 2022.

Dagskrá keppninnar er hér; HYDRA.

  • Þriðjudagur 5. apríl kl. 19.30 Skautahöllin á Akureyri.
  • Fimmtudagur 7. apríl kl. 19:00 Skautasvellið Egilshöll.
  • Laugardagur 9. apríl  kl. 19:30 Skautahöllin á Akureyri.
  • Þriðjudagur 12. apríl kl. 19:45 Skautasvellið Egilshöll.
  • Fimmtudagur 14. apríl  kl. 19:00 Skautahöllinni á Akureyri.

Öllum leikjum verður streymt á ÍHÍ-TV.

 Hertz-á Íslandi er aðalstyrktaraðili Íshokkísambands Íslands 2021-2022.

Hertz á Íslandi