Úrslitakeppni karla í íshokkí 2018

Fyrsti leikur, SA Víkingar vs Umfk Esja
Fyrsti leikur, SA Víkingar vs Umfk Esja

Þann 3. apríl hefst úrslitakeppni karla í íshokkí og leiknir verða hið minnsta þrír leikir og allt hið mesta fimm leikir.  Það lið sem knýr fram sigur í þremur leikjum er íslandsmeistari 2018.

 

  • 3. apríl kl 19:30 SA-Víkingar vs Umfk Esja, Skautahöllin á Akureyri
  • 5. apríl kl 19:30 Umfk Esja vs SA Víkingar, Skautahöllin í Laugardal
  • 7. apríl kl 17:00 SA Víkingar - Umfk Esja, Skautahöllin á Akureyri
  • 10. apríl kl 19:30 Umfk Esja vs SA Víkingar, Skautahöllin í Laugardal
  • 12. april  kl19:30 SA-Víkingar vs Umfk Esja, Skautahöllin á Akureyri

 

Þar sem SA Víkingar unnu deildarmeistaratitilinn 2018 þá hafa þeir heimaleikjaréttinn og hefst þvi úrslitakeppnin á Akureyri.

Við eigum von á æsispennandi úrslitakeppni og þurfa bæði lið á öllum þeim stuðningi að halda sem mögulegur er og hvetjum við því alla íshokkí unnendur að mæta í hallirnar og taka þátt í leiknum.  Við eigum von á magnaðri hokkí veislu.

Íshokkísamband Íslands