Á morgun laugardaginn 21. mars hefst úrslita viðureign Skautafélags Akureyrar og Skautafélags Reykjavíkur í íshokkí kvenna. Þessi fyrsti leikur er á Akureyri og hefst klukkan 16:45. Það lið sem fyrr vinnur 3 leiki vinnur Íslandsmeistara titil.
Eins og flest innan hreyfingarinnar hafa heyrt, eru uppi deildar meiningar um túlkun á reglugerðum sambandsins. Svo gæti farið, að á þessar reglur verði látið reyna í þessari úrslitakeppni. Þetta er lögfræðilegt álitaefni sem einungis verður hægt að leiða til lykta með aðkomu dómstóls. Hvernig sem þetta mál þróast vil ég hvetja leikmenn, starfsmenn liða og aðra sem að keppninni koma, að láta þetta ekki koma sér úr jafnvægi, heldur njóta þess að taka þátt í þessari úrslitakeppni sem er hápunktur tímabilsins.
Það gilda engar sérreglur um þessa leiki og öll mál sem upp geta komið fara beint til aganefndar til úrskurðar áður en næsti leikur er leikinn. Því miður er það svo að veðurguðir eru ekki að gera okkur lífið auðveldara. Veðurspá næstu daga er virkilega krefjandi. Mótanefnd sambandsins er að skoða hvaða leiðir eru færar ef veður hamlar því að hægt verði að leika. Stuðst verður við reglugerðir okkar sem kveða á um að ákvörðun um frestanir verður tekin klukkan 09:00 á keppnisdag. Ef útlit er fyrir að veður sé að ganga niður er mögulegt að fresta ákvörðun til klukkan 11:00 á keppnisdegi. Tilkynningar verða birtar jafnóðum og ákvarðanir liggja fyrir á vef sambandsins.
Úrslitaleikina má horfa á í beinu streymi á streymisveitu ÍHÍ eða með því að smella hér.
Gangi ykkur öllum sem best í komandi einvígi og góða skemmtun til okkar fjölmörgu áhangenda
Viðar Garðarsson
Framkvæmdastjóri ÍHÍ