Undankeppni Ólympíuleikanna 2022

Vladimir Kolek og Sami Lehtinen landsliðsþjálfarar karla í íshokkí hafa valið lokahóp landslið karla sem tekur þátt í undankeppni Olympíuleikanna 2022 í Rúmeníu 12. - 15. desember 2019.

Þátttökuþjóðir auk Íslands eru Rúmenía, Ísrael og Kirgistan. Sigurvegarar úr þessum riðli munu svo taka þátt í þriðju umferð undankeppninnar í febrúar 2020.

Fyrsti leikur Íslands er á móti Kirgistan,  kl 13 fimmtudaginn 12. desember, annar leikur Íslands er á móti Ísrael, kl 13 föstudaginn 13. desember og svo er lokaleikurinn á móti Rúmeníu kl 17 þann 15. desember.

Allir leikir undankeppninnar verða í beinni útsendingu á streymisrás alþjóða íshokkísambandsins og má finna allar upplýsingar um liðin og keppnina hér.

Landslið Íslands - undankeppni Ólympíuleikanna 2022

  • Dennis Mikael Hedström
  • Jóhann Björgvin Ragnarsson
  • Ingvar Þór Jónsson
  • Sigurður Freyr Þorsteinsson
  • Róbert Freyr Pálsson
  • Vignir Freyr Arason
  • Gunnar Aðalgeir Arason
  • Atli Þór Sveinsson
  • Bjarki Reyr Jóhannesson
  • Andri Már Mikaelsson
  • Jóhann Már Leifsson
  • Hafþór Andri Sigrúnarson
  • Kristján Árnason
  • Sölvi Freyr Atlason
  • Miloslav Racansky
  • Ólafur Hrafn Björnsson
  • Kristján Albert Kristinsson
  • Axel Snær Orongan
  • Robbie Michael Sigurdsson
  • Heiðar Örn Kristveigarson
  • Egill Birgisson

 Ingvar Jónsson er fyrirliði, Robbie Sigurdsson og Róbert Freyr Pálsson aðstoðarfyrirliðar.

Liðsstjóri Sigurður Sveinn Sigurðsson

Tækjastjóri Leifur Ólafsson

Sjúkraþjálfari Emanuel Sanfilippo