Á komandi tímabili mun U20 ára landslið Íslands taka þátt í hluta af Toppdeild karla. Þetta hefur tvíþættan tilgang. Annarsvegar að gefa liðinu tækifæri á því að spila meira saman en verið hefur, áður en liðið heldur í landsliðsverkefni sitt í Istanbúl Tyrklandi í janúar 2027. Það er samdóma álit aðila sem til liðsins þekkja að þetta gæti verið afar gagnlegt fyrir þessa drengi. Hinsvegar uppfylla skilyrði IIHF að leika með 4 lið í Toppdeild karla.
ÍHÍ er að leggja lokahönd á sérstaka reglugerð í kringum þátttöku liðsins og verður hún birt á næstu dögum. Í þeirri reglugerð er opið fyrir að styrkja liðið eftir ákveðnum reglum ef þurfa þykir. Þjálfarar liðsins verða þeir Gauti Þormóðsson og Gunnlaugur Thoroddsen Björnsson. Tækjastjóri Ingi Snorri Bjarkason
Hér fyrir neðan eru þeir leikmenn sem eru á leikmannalista fyrir þetta verkefni. Það er þó rétt að taka hér fram að leikmannalisti þessi getur tekið breytingum hratt.
Markmenn
Elvar Ingi Sigurðsson
Haraldur Páll Pétur Nickel
Elvar Rúnarsson
Þórir Aspar
Útileikmenn
Baldur Örn Mortensen
Aron Freyr Gautason
Elmar Rafn Steinarsson
Brynjar Örn Ólafsson
Þorsteinn Óli Garðarsson
Benedikt Brynjar Ingólfsson
Finnur Bessi Finsson
Egill Þorsteinsson
Axel Andrason
Sölvi Blöndal
Gabríel Egilsson
Mikael Eiríksson
Tryggvi Snævarsson
Helgi Bjarnason
Axel Ingason
Sæmundur Þorsteinsson
Elvar Skúlason
Aron Ingason
Bjartur Westin
Jón Magnússon
Stefán Guðnason
Bjarki Jóhannsson
Rökkvi Ásgeirsson
Hrannar Sigurðsson
Þjálfarar hafa einnig augun á nokkrum yngri leikmönnum sem mögulega fá einhverjar mínútur með liðinu. Þeim verður gert kleyft að æfa með liðinu þegar þess er kostur. Nái þeir inn í hóp verða þeir í takmörkuðu og vernduðu hlutverki innan liðsins. sama gildir hér að þessi hópur getur tekið breytingum. Þessir leikmenn eru.
Fæddir 2011, Styrmir Knörr Nickel, Andrés Þór Bridde Gylfason
Fæddir 2012, Jónatan Axfjörð Jónsson, Garðar Breki Helgason, Fannar Hólm Ólafsson
Allir þeir sem nefndir eru hér að ofan eru boðaðir í æfingabúðir U20 og U18 sem verða í Laugardalnum. 29. og 30. ágúst, og hefjast þær klukkan 09:00 með fundi þar sem verður farið betur yfir þetta fyrirkomulag og þær reglur sem um þetta gilda.