U18 kvenna hefur leik í dag á HM í Búlgaríu

Kvennalandslið Íslands skipað leikmönnum yngri en 18 ára hefur leik í dag í sýnum styrkleikariðli með leik á móti Mexíkó. Fyrirfram er lið Mexíkó það sterkasta á þessu móti þannig að þetta getur orðið erfið viðureign.  Okkar konur léku í gær æfingaleik við lið Nýja Sjálands og unnu hann 4 - 1 sem er gott boozt fyrir liðið fyrir viðureignina í dag.  Því verður afar áhugavert að sjá hvort liðið geti strítt Mexikó í dag. Leikurinn hefst klukkan 11:00 og hér er hlekkur á streymi. Í streyminu þarf að gefa upp netfang en það kostar ekkert. 

Áfram Ísland. 

https://bihf.livearenasports.com/en/home