Tveir spennandi leikir í dag í Laugadalnum

Í dag fara fram síðustu tveir leikirnir í undankeppni Ólympíuleikanna sem fram fer í Laugadalnum þessa dagana.  Kl. 13:30 mætast Suður Afríka og Búlgaría og kl. 17:00 hefst úrslitaleikurinn á milli Íslands og Eistlands.  Báðir leikirnir verða vafalaust spennandi og skemmtilegir og nú er bara drífa sig í höllina - þar eru engar umhleypingar, blankalogn og stöðugar 7 gráður, heitt á könnunni og vöfflur með rjóma - gerirst ekki betra og áfram Ísland!