Þjálfarateymi U18 kvenna

ÍHÍ hefur gengið frá samkomulagi við eftirtalda aðila um að annast þjálfun á U18 kvennalandsliði sambandsins.

Aðalþjálfari verður Sunna Björgvinsdóttir.
Sunna er 26 ára og lék með Skautafélagi Akureyrar um árabil þar til hún flutti til Svíþjóðar árið 2019. Þar lék hún meðal annars með Sodertelje SK, IF Troja-Ljungby, IF Leksands (SDHL) og HV71 (SDHL) með mjög góðum árangri. Hún hefur leikið með kvennalandsliði Íslands síðan 2015, þá 15 ára, og hefur verið fastur leikmaður landsliðsins allar götur síðan og í dag fyrirliði landsliðsins. Sunna er ein okkar allra besta íshokkíkona og er nú komin heim hokin af reynslu eftir árin í Svíþjóð.

Aðstoðarþjálfarar, Kolbrún Garðarsdóttir og Hákon Marteinn Magnússon. Kolbrún er uppalin hjá SA en síðustu árin lék hún með Fjölni og var lykilleikmaður og fyrirliði í kvennaliði Fjölnis sem var Íslandsmeistari 2024, þá vann liðið þann einstaka árangur að verða fyrsta Fjölnis liðið til þess að verða Íslandsmeistari í hópíþrótt frá því félagið var stofnað. Allir sem þekkja til íshokkís vita að það er mikill fengur fyrir U18 liðið okkar að fá reynslubolta eins og Kollu í þjálfarateymið. Sama má segja um Hákon Martein, sem í dag skipar sér í hóp bestu leikmanna í Topp deild karla. Hákon var aðstoðarþjálfari hjá U18 pilta á síðasta tímabili með góðum árangri, en færir sig nú yfir og hefur samstarf við Sunnu. ÍHÍ er afskaplega ánægt með hópinn og væntir mikils af honum.

Verkefni U18 liðsins er HM á Akureyri í janúar 2027. Fyrstu æfingabúðir verða í byrjun des og frá þeim tíma verður æft nokkuð stíft og snarpt fram að keppninni í janúar. Fram undan er svo fyrsta helgarmót U17 kvenna og mun þjálfarateymið fylgjast vel með gangi mála þar.

Mynd samsett, frá vinstri Hákon Marteinn Magnússson, Sunna Björgvinsdóttir og Kolbrún Garðardóttir