SR tekur á móti SA-Víkingum, þriðjudaginn 19. september

Hertz-deild karla heldur áfram þriðjudaginn 19. september, þegar Skautafélag Reykjavíkur tekur á móti Skautafélagi Akureyrar-Víkingum. Leikurinn fer fram í Skautahöllinni Laugardal og hefst leikur kl 19:45.

Nú er um að gera að fjölmenna og hafa gaman að.

Staðan er þannig að Esja hefur 6 stig, SA-Víkingar og Björninn hafa 3 stig hvor og SR rekur lestina með 0 stig.