Í dag er til moldar borin, Sólveig Hulda Valgeirsdóttir hjúkrunarfræðingur og fyrrum íshokkí leikmaður Skautafélags Akureyrar, íhokkí mamma, heilbrigðis starfsmaður landsliða og einn af máttarstólpum í íshokkíhreyfingunni sem lést langt fyrir aldur fram 22. febrúar síðastliðinn.
Sólveig lét sig velferð allra í hreyfingunni varða, leikmenn, þjálfara, sjálfboðaliða og starfsfólk. Hún tók virkan þátt í uppbyggingu kvenna íshokkís, og hugsaði um leikmenn U18 ára stúlkna landsliðs Íslands eins og hún ætti þær allar. Þær eru ófáar íshokkí landsliðskonurnar sem nutu visku hennar og alúðar, bæði líkamlega og andlega á erfiðum stundum í gegnum árin. Við kveðjum því góðan félaga með þakklæti og virðingu.
Stjórn og framkvæmdastjóri Íshokkísambands Íslands senda fjölskyldu Sólveigar innilegar samúðarkveðjur.