Sheldon Reasbeck ráðinn aðalþjálfari SA

Sheldon Reasbeck hefur verið ráðinn nýr aðalþjálfari SA. Sheldon, sem er 38 ára Kanadamaður, er SA ekki alveg ókunnugur starfinu hjá SA þar sem hann hefur verið gestaþjálfari með Hockey without boarders síðustu tvo vetur. Sheldon verður yfirþjálfari og þróunarstjóri yfir unglingaflokkunum U14, U16 og U18 auk þess að þjálfa meistaraflokka félagsins. 

Sheldon kemur frá Kapuskasing Flyers í AAA hokkí í hans heimabæ, Kapuskasing í Ontario. Sheldon er með þjálfararéttindi og tækniþjálfunarréttindi frá Hockey Kanada en er einnig lærður styrktarþjálfari. Sheldon er eigandi PowerPlay Hockey sem sérhæfir sig í leikmannaþróun en Sheldon hefur samhliða annari þjálfun verið virkur þjálfari fylkisliðanna í Norður Ontario. Sheldon er með nokkuð framsækna nálgun og hugmyndir sem passa vel við hugmyndafræðina hjá SA segir á vef félagsins. 

Sheldon hefur störf norðan heiða 1. september.