SA Víkingar komnir til Búlgaríu - Continental Cup

Skautafélag Akureyrar, meistaraflokkur karla, SA Víkingar eru komnir til Búlgaríu og taka þar þátt í Contintental Cup.

Hörkuspennandi mót framundan og munu okkar menn taka á móti mjög sterkum félagsliðum.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu IIHF; https://www.iihf.com/en/events/2023/cca

Frétt af heimasíðu SA, 22. september 2022;

SA Víkingar lögðu nú í morgunsárið af stað frá Akureyri til Sófíu í Búlgaríu þar sem liðið tekur þátt fyrstu umferð Continental Cup nú um helgina. Continental Cup er Evrópukeppni meistaraliða Evrópu frá síðasta tímabili í en átta lið frá átta löndum taka þátt í fyrstu umferð í tveimur fjögurra liða riðlum þar sem sigurvegarar hvors riðils fara áfram í næstu umferð.

Í riðlinum okkar eru Tartu Valk 494 frá Eistlandi, KHL Sisak frá Krótatíu og heimalið NSA Sofia frá Búlgaríu. Riðillinn er mjög sterkur en sigurvegari riðilsins kemst áfram í aðra umferð en þetta er í fjórða sinn sem Víkingar taka þátt í keppninni og hefur liðið hefur aðeins einu sinni farið áfram í næstu umferð. Víkingar spila leikina næstu þrjá daga en fyrsti leikur er annað kvöld þegar liðið mætir heimaliðinu NSA Sofia en leikurinn hefst kl. 16:30 á íslenskum tíma en hér má sjá leikjadagskránna og verður vonandi hægt að finna streymi á síðunni á morgun þegar leikurinn hefst.

Undirbúningurinn hjá SA Víkingum hefur verið nokkuð knappur þar sem að liðið komst ekki á ís fyrr en fyrir rúmri viku en liðið hefur æft að kappi og síðan þá. Leikmannahópurinn hjá SA Víkingum er lítið breyttur frá síðasta tímabili en nokkuð þunnur líkt og oft áður svo snemma á keppnistímabilinu en þrátt fyrir fámenni eru flestir leikmenn liðsins annaðhvort A-landsliðs eða unglingalandsliðsleikmenn núverandi og fyrrverandi. Af nýjum leikmönnum ber helst nefna að stjörnukennarinn Ingvar Þór Jónsson hefur dregið fram skautana og mun taka slaginn með drengjunum í Búlgaríu og markamaskínan Andri Freyr Sverrison er kominn aftur á heimaslóðir og kemur til með að styrkja sóknarleikinn hjá liðinu. Hópurinn er annars aðeins skipaður uppöldum leikmönnum úr félaginu sem verður að teljast nokkuð sérstakt og eflaust einstakt í svona öflugri keppni félagsliða í Evrópu og því sérstaklega skemmtilegt að sjá hvernig liðinu reiðir af í keppninni.

Föstudagur kl. 16:30: NSA Sofia – SA Víkingar

Laugardagur kl. 13:00: KHL Sisak – SA Víkingar

Sunnudagur kl. 16:30: Tartu Valk 494 – SA Víkingar

Leikmannahópur SA Víkinga:

Andri Freyr Sverrisson

Andri Már Mikaelsson

Atli Þór Sveinsson

Baltasar Ari Hjálmarsson

Birkir Rafn Einisson

Gunnar Aðalgeir Arason

Hafþór Andri Sigrúnarson

Heiðar Gauti Jóhannsson

Heiðar Örn Kristveigarson

Ingvar Þór Jónsson

Jakob Ernfelt Jóhannesson

Jóhann Már Leifsson

Matthías Már Stefánsson

Ormur Karl Jónsson

Sveinn Verneri Sveinsson

Róbert Andri Steingrímsson

Róbert Máni Hafberg

Unnar Hafberg Rúnarsson

SA Víkingar Continental Cup 2023