SA Víkingar Deildarmeistarar 2019

Ásgrímur Ágústsson tók myndina.
Ásgrímur Ágústsson tók myndina.

SA Víkingar eru deildarmeistarar 2019.

Einn leikur fór fram í Hertz-deild karla um helgina þegar SA Víkingar tóku á móti Birninum. 

Meistaraflokkur Bjarnarins mættu grimmir til leiks og létu hafa talsvert fyrir sér, staða leiks eftir hefbundinn leiktíma var jöfn og þurfti framlengingu til að knýja fram úrslit.  Sigur SA Víkinga blasti við eftir gullmark Jussi Sipponen rétt eftir af framlenging hófst.

Eftir leik steig formaður Íshokkísambands Íslands, Helgi Páll Þórisson, á ísinn og afhenti nýjan deildarmeistarabikar til SA Víkinga. Bikarinn er farandbikar sem verður hjá Skautafélagi Akureyrar næsta árið.

Íshokkísamband Íslands óskar Skautafélagi Akureyrar innilega til hamingju með titilinn.