Óli Stef með fyrirlestur fyrir þjálfara og stjórnarfólk

Ólafur Stefánsson verður með fyrirlestur sinn AFREKSMANNESKJAN í Skautahöllinni í Laugardal. Fyrirlesturinn er sérstaklega aðlagaður fyrir þá sem annast þjálfun ungs afreksfólks og þeirra sem sitja í stjórnum íshokkídeilda. Markmiðið með þessum fyrirlestri er að auka vitund þjálfara og stjórnarfólks á því hvað skiptir mestu máli í umhverfi afreksunglingsins.

Sífellt fleiri rannsóknir sýna að þjálfarar eru meðal mikilvægustu áhrifavalda í lífi ungmenna á aldrinum 14–19 ára. Á þessum árum mótast ekki aðeins íþróttafærni heldur einnig sjálfstraust, sjálfsmynd, samskiptafærni og hæfni til að takast á við mótlæti. Á sama tíma er þetta sá aldur þar sem brottfall úr íþróttum eykst mest og félagslegar áskoranir aukast.

Ólafur Stefánsson, mastersnemi í sálfræði og íþróttasálfræðiráðgjafi, fyrrum landsliðsfyrirliði og atvinnumaður í handbolta, er ræðumaður dagsins og er markmið fyrirlestursins að styðja þjálfara í að samþætta hagnýta hugarfærni inn í daglegt æfingastarf, rétt eins og unnið er með tækni, leikskilning og líkamlega þjálfun. Áhersla verður lögð á einföld og hagnýt verkfæri sem styrkja athygli, sjálfsstjórn, samskipti, seiglu og jákvæða afreksmenningu innan liða.

Þetta er fyrsta skref í þeirri viðleitni að styðja við faglegt afreksstarf aðildarfélaga ÍHÍ. Fleiri skref í þessa átt koma síðar á tímabilinu. Þátttakendur verða að skrá sig á hlekk hér að neðan.

Skráning hér