Í gegnum þróunar samstarf ÍHÍ og IIHF verður boðið upp á eftirtalin verkefni á vegum IIHF á komandi tímabili. Að hámarki fær Ísland 2 sæti á hvert námskeið, eitt fyrir karl og annað fyrir konu. Námskeiðin sem hér um ræðir eru þessi.
- IIHF Youth Hockey Director Program, Vienna (AUT) | 15-19.02.2027
- IIHF Learn to Play Program, Nairobi (KEN) | 25-29.11.2026
- IIHF Coaching Level I, Mechelen (BEL) | 26-30.01.2027
- IIHF Goalkeeper Coaching Program, Place (TBA) | 08-12.06.2027
ÍHÍ í samstarfi við IIHF greiðir verulegan hluta af ferðakostnaði og uppihaldi, þó er gert ráð fyrir smá kostnaðarþátttöku frá hverjum aðila sem valin er. Ef margir óska eftir sætum mun stjórn ÍHÍ ákveða hverjir fá sæti, með heildarhagsmuni hreyfingarinnar í huga.
Umsóknir fara fram í gegnum aðildarfélög ÍHÍ. Áhugasamir setji sig í samband við formenn þeirra félaga sem þeir starfa hjá.
Umsóknarfrestur aðildarfélaga er til miðnættis föstudagsins 16. október 2026