Leikir vikunnar

Myndataka, Gunnar Jónatansson
Myndataka, Gunnar Jónatansson

Bikarkeppni Íshokkísambands Íslands, Lýsibikarinn, fór vel af stað föstudaginn 30. ágúst þegar SR tók á móti Fjölni/Birninum í Skautahöllinni í Laugardal.  Hörkuspennandi leikur þar sem liðin tókust á og var leikurinn jafn framanaf.  Lokaúrslit leiksins 4-1 fyrir SR. 

Sunnudaginn 1. september tók SA á móti Fjölni/Björninn og ekki var nú spennan síðri fyrir norðan.  Leikurinn fór í framlengingu og enginn annar en Ingvar Jónsson sem skorar gullmark. Lokaúrslit 3-2 fyrir SA.

SR gaf leik sinn á móti SA  og staðan eftir fyrri umferð;

  • SA Víkingar 5 stig
  • SR 3 stig
  • Fjölnir/Björninn 1 stig

Þriðjudaginn 3. september hefst Íslandsmót U18. Fjölnir/Björninn mun taka á móti SR í Egilshöll og hefst leikur kl 19:45.

  • Föstudaginn 6. september, Lýsibikarinn, Fjölnir/Björninn - SR í Egilshöll
  • Laugardaginn 7. september, Lýsibikarinn, Fjölnir/Björninn - SA í Egilshöll 
  • Sunnudagurinn 8. september, Lýsibikarinn, SR - SA í Laugardal.